| Hvernig skal panta |
|
Velja hringinn. Skoðaðu myndinar á síðunni til að finna þann hring sem þér líst best á. Einnig er hægt að koma í heimsókn og skoða úrvalið með eigin augum. Þá er líka hægt að koma með hugmyndir að hring og bera undir mig og sjá hvort ekki sé möguleiki á að smíða hann eftir þinni hugmynd. Einnig er hægt að grafa inní hringana "þinn/þín" eða það sem ykkur dettur til hugar.
Rétt stærð. Þrjár leiðir hafa reynst vel þegar kemur að því að mæla út hvaða stærð hringurinn á að vera. 1 - Koma til mín og máta til að finna rétta stæðr. 2 - Mæta til næsta gullsmiðs og láta hann taka málin af puttanum og senda mér þau svo. 3 - Finna hring sem passar á puttan ykkar og senda mér þau mál.
Panta. Ef komið er í heimsókn þá er gengið frá pöntuninni þar. Einnig er hægt að hringja í mig eða velja "Hafðu samband" linkinn hér til hliðar og senda mér allar upplýsingar þar.
Greiðsla. Greiðsla fer fram þegar hringarnir eru sóttir nema ef grafa á inní hringinn þá þarf að greiða fyrir þann kostnað áður (oftast um 2 þús)
Afgreiðslutími. Það tekur um 2 daga að smíða hringana en ef á að grafa inní þá þá getur það tekið allt að viku. |