Hringamyndir

 

Hérna fyrir neðan eru myndir af hluta þeirra hringa sem ég hef smíðað.

 

Þessir eru þeir klassísku.  Hálfkúptir og æðislega flottir.  Hægt er að fá þá mismunandi kúpta og mis breiða.

plain

 

Þessir flottu hafa alltaf verið mjög vinsælir og eru mjög nettir og þægilegir.

sléttir

 

Hamraðir og klassískir.  Hægt að fá mismunandi mikið hamraða og í mismunandi sverleikum.

hamrað

 

Hér er annað dæmi um hamraðan hring.  Þessi er með hitaflekki á sem magna áhrifin á hömruninni.

hamraður svet

 

Þessir eru með sléttan flöt með mjúkum brúnum.  Hægt er að velja á milli mismunandi áferðar á slétta flötin.

með sléttan flöt

 

Þessir eru svipaðir og þessum hér að ofan nema mun breiðari

breiður og slípaður

 

Þessir eru með mattri áferð.  Hægt er að velja um hverjsu gróf áferðin er.  Hentar vel þeim sem vilja ekki hafa þá háglansandi.

Mjög fín mött áferð.

Mattur hringur

Milligróf áferð.

Mattur hringur

 

Þessi er frekar mjór og oft notaður sem hringaband.

Mjór hringur notaður sem hringaband

 

Fyrir þá sem vilja hafa þá mikla og massíva, þá er þessi málið.

sver

 

Með koparrönd.  Mjög vinsælir.  Koma mjög vel út og með tímanum mun þessi háglansandi koparrönd taka á sig grænan lit.  Einnig er mjög einfalt að ná græna blænum af koparröndinni með því að pússa hann. 

Koparrönd

 

Þessi er sléttur að ofan með breiðari koparrönd.

breið koparrönd

 

Þótt það sjáist illa þá er þessi með þremur þvertliggjandi röndum.  Möguleiki er á því að gera þetta mynstur á ýmsa vegur.

koparstrik

 

 

Þessar myndir sýna ekki endanlegt úrval.  Ekkert mál er að koma með eigin hugmyndir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvernig finnnst þér síðan
 
Forsíða Gæðahringar Myndir